05.10.2008 22:29:04 / blau-krilin

Game Over ???


































» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2008 15:35:14 / blau-krilin

Veit Ekki Alveg

í raunninni veit ég ekki einu sinni hvar ég hef verið... Sennilegast í mínum eigin heimi einhversstaðar, veit ekki alveg hvort það sé gott eða slæmt.... Er allsvakalega farin að detta útúr raunveruleikanum.. Þetta er rosa skrítin tilfinning en ég veit ekki hvernig hægt er að lýsa henni betur.. Kannski er ég bara svona allsvakalega geðveik eða eitthvað ... Er farin að taka meira og meira eftir þessu.. Þetta er alveg rosalegt sko...En ég er hjá Sála 1 sinni í viku og er að reyna að vinna eitthvað í þessu :D

En allavena þá er ég að fara suður 8 Október og auðvitað hlakkar mig heavy mikið til :Þ Er búin að bíða og bíða og bíða endalaust eftir að komast suður heheh.
Vonandi hitti ég ALLA þá sem mig langar að hitta heheheh you know who you are :Þ

Er loksins farin að sofa almennilega sem er náttla bara BEST :Þ

*Nýr Strumpur Vikunnar.

Búin að flytja mig um herbergi sem er bara næs... Keypti fullt af nýjum og flottum hlutum fyrir nýja herbergið mitt til að gera það mest kósý herbergi í heimi heheh og gerði the wall of fame á einn vegginn.. held að það sé mynd af ykkur öllum á honum :Þ Strumpahlátur dauðans vúhúúúú.
Ný manneskja komin inná heimilið þar sem stúlkurnar Idz og Edz eru fluttar.. Hann heitir Arnar Haukur og er frændi hans Patta :Þ og þar á meðal kom hundurinn hans með sem heitir Móna og mun hún vera Boxer tegund.. æhhhhh hún er svo mikil dúlla heheh

OK... Orðið opinbert að ég og Patti erum saman... Er hann ekki SÆTASTUR hah :Þ
l_9f2048cdec0c20ac43293f5131b5243b.jpg picture by Strumparnir

Hmmmmmm er að spá í að skella mér aftur inní minn heim þar sem þessi heimsókn inní raunveruleikann var bara stutt... Vonandi hafiði það sem allra best og ég vona að ég hitti ykkur öll í Borg óttans þegar þar að kemur :Þ

*Strumpaknús til ykkar allra.

*Myndband Dagsins :

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2008 17:53:38 / blau-krilin

Úffff sko myndi ég nú bara segja !!!!

jæja.... Ég er einhvernvegin ekki sátt með helgina... Var að vinna áföstud og laugard en fékk að fara aðeins fyrr úr vinnunni því systurmínar ætluðu að halda smá grill party um kvöldið og ég ætlaði að faraheim og baka köku og eitthvað til að hafa í eftirrétt...
Þetta gekk allt vel og vorum við búnar að bjóða nokkrum manneskjum..T.D. æðislega gaurnum sem ég er eitthvað að hitta og tvem vinum hans.
Tók mig um 2 tíma að baka og þegar ég var loksins búin að því hjálpaðiég Idz að lita á sér hárið á meðan systir mín fór að sækja gaurana.
Fór ég svo og tók mig til og gerði mig fína :D og er þá leiðinni haldið heim til systra minna þar sem þau voru að bíða...
Það var grillað eitthvað smá og drukkið áfengi sem er kannski ekkisniðugt þar sem við allar 3 systurnar erum nákvæmlega eins í skapinu..Var fullt af fólki komið í heimsókn og til að byrja með var kvöldiðæðislegt ef ég á að orða það á einhvern hátt...
Þangað til ein systirin fékk kast og ekki náðist að róa hana niðurstrax sem endaði með að ein önnur systirin fékk kast og ekki náðistheldur að róa hana niður sem endaði með því að ég fékk kast. Horfðuallir uppá þetta og endaði með því að allir löbbuðu í sitthvora áttinaog þar með tæmdist húsið...
Ég var ekki orðin það drukkin þannig ég vissi alveg hvað ég sagði og gerði.. en endaði heima og drakk þangað til ég drapst...
Mér finnst þetta mjög leiðinlegt hvernig þetta "skemmtilega" kvöld fór.
Vona bara alveg innilega að fólkið sem var þarna taki þetta ekki innásig og haldi að þetta sé alltaf svona... Ég elska systur mínar útaflífinu en er ekki að meika eitthvað svona aftur....
Vona samt innilega að ein ákveðin manneskja sé ekki fúl útí mig íaugnablikinu og geti horft framhjá þessu því mér er farið að þykjafrekar vænt um þessa manneskju og vil alls ekki missa hana <3

En allavena... Uppáhaldslagið mitt í augnablikinu :

En jaaaáááá í dag er sunnudagur... Byrjaði á að fara niðrá Kaffihúsið hérna hinum megin við götuna og ná í take away kaffi handa mér og Idz pöntuðum okkur svo pizzu og erum búnar að sitja hérna fyrir framan imbann og skoða stöðvar yayyyy geggjað gaman... Veit ekki hvað ég á að gera af mér í dag þar sem að ég er í fríi hmmmmmm einhverjar hugmyndir????

En allavena þá ætla ég bara að láta þetta duga í dag :D
vonandi eigiði bara góðann dag og skemmtið ykkur vel... Munið að vera alltaf góð hvort við annað elskurnar !!!

Strumpaást til ykkar allra !! <3 <3 <3 <3 <3 <3

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 22:01:08 / blau-krilin

Blogg Og Ekki Blogg :Þ

Jæja gott fólk...
Ég veit að ég er búin að vera frekar löt að blogga en þar sem ég er farin að vinna til 8.30 á hverju einasta kvöldi hef ég bara hreinlega ekki haft tíma til neins...
Fyrir utan það að ég er ekkert búin að vera heima síðustu 2 vikurnar eða svo því ég hitti þennan æðislega herramann og er búin að vera mest megnið hjá honum :Þ vúhúúúú ætla samt ekki að nefna nein nöfn hahahhah :Þ

En allavena þá var síðasta blogg rétt fyrir Eistnaflug... Allir að fara á www.eistnaflug.is og skoðið myndirnar sem eru komnar þar inn... Eða líka bara á myspacinu mínu www.myspace.com/adexj Þetta var náttla bara snilld sko.. Þó að ég hafi drukkið frekar mikið og ákaft þá man ég nú eiginlega bara allt sko og skemmti mér frábærlega hehehe takk takk fyrir það allir sem ég hjékk með allann tímann :Þ
Hitti þar mikið af vinum mínum um land allt og kynntist fullt af nýju fólki.. Sem er bara snilld því mér finnst heavy gaman að kynnast nýju fólki...

En eins og ég sagði hér fyrir ofan þá er ég bara búin að vera að vinna og vinna og vinna.. Ekkert spes að ské nam jú kannski það að ég er farin að taka mig gjörsamelag á og fer til sála 1-2 í viku og er byrjuð á nýjum lyfjum, sem er bara fínt... Mér líður mun betur og bla bla bla :Þ

MIG LANGAR SUÐUR !!!!!!

*Held að ég þurfi að fara að reyna koma höndum mínum yfir þessar töflur :Þ



*Er að fá ný gleraugu um mánaðarmótin... Kosta samt alveg 50.000 KR djöööööö en ég þarf þau til að sjá eitthvað loksins hehehehh... hlakka samt alveg til að fá þau vúhúúú *Klapp *Klapp úr spenninngi heheheh

Hvert ætla samt allir um Versló?????? Það er sko stóra spurningin heheh ég veit samt að ég er að vinna á laugardeginum þanning maður lætur sér það duga að rétt kíkja á Neistaflug sem er á Neskaupsstað... Kannski bara rétt að kíkja sko... Ætla ekki að vera eitthvað dauðadrukkin sko... Ég veit að þetta soundar skringilega þegar þetta kemur úr mínum kjafti en samt... Þarf að fara að slaka á í drykkjunni AWWWWWWW !!!!

*Nýr Strumpur vúhúúú Loving Smurfs :Þ

*Er að spá í að skella mér í eldhúsið og baka köku :) yayyyy það er alltaf gaman sko heheh
endilega kíkiði í köku hahahahah annars borðum ég og Edz hana aleinar :P vúhúúú
En jaaaáááá þannig ég segi nú bara bless í bili snúllur.

*Myndband Dagsins :

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 16:24:56 / blau-krilin

Góðan Daginn

OHHHHH Ég vaknaði í morgun með þá hugsun í hausnum að mig LANGAR suður !!!
Alveg sko.. Need to get away from here, damn...
En það verður ekki alveg strax.. Vonandi fljótlega samt heheh :D Sakna allra vina minn fyrir sunnann :D *HeArTz my friends <3

*Búin að vera rosalega dugleg að vefja mig alla sundur og saman og fara út að hlaupa :D Og boxa þar sem ég er með boxpúða hangandi hérna heima :D


En vaaaaááá... Hvað haldiði að hafi komið fyrir mig um daginn heheh
Ég var fór útí sveit að hlaupa og mæti ég ekki þar rolluhjörð sem var bara laus þarna á miðjum veginum.. Komst ég nú lifandi framhjá þeim.
Þegar ég kom til baka stóð hrúturinn þarna og einhver lömb hinumegin við götuna og horfði hrúturinn á mig eins og hann ætlaði að éta mig.. Mér leist nú ekkert á blikuna og reyndi að komast nú framhjá þeim ósýnileg.. Byrjaði hrúturinn þá ekki að jarma á fullu og ég virkilega hélt að hann ætlaði í mig og stanga mig til bana sko...
Ég held að ég hafi ALDREI hlupið jafn hratt á æfi minni hahahahhahahha Það var alveg smá fyndið svona eftirá :D

*Á laugardaginn síðasta hugsaði ég með mér að ég sakna svo mikið pinnana sem ég var með sitthvoru megin í vörinni "er með 2 í miðjunni fyrir" settist ég ekki bara niður með töngina mína, nálarnar og sótthreinsi og gataði mig 2svar í viðbót :D þannig ég er loksins komin með alla 4 í vörina aftur YAYYYY mér finnst það æði.. Þó ég þurfi nú oft að hlusta á frá öðrum : HVAÐ ERTU AÐ SPÁ... AFHVERJU ERTU AÐ ÞESSU... ÞETTA ER ÓGEÐSLEGT... ÞÚ ERT SVO SÆT STELPA OG ÉG SKIL EKKI AFHVERJU ÞÚ ERT AÐ EYÐILEGGJA ÞIG SVONA... BLAH BLAH BLAH...
En ef ég á að segja eins og er þá er ég að gera þetta fyrir sjálfa mig því mér finnst þetta flott.. ekki fyrir einhvern annan sem býr hérna útí bæ heheheh en svona er þetta bara vúhúúú.
En eins og flestir hafa kannski tekið eftir þá tek ég þetta úr mér þegar mér hentar og set þetta í seinna ef mig langar :D
Ef mig myndi langa að taka alla úr akkurat núna þá myndi ég gera það sko og svo bara setja þá í seinna ef mig langaði heheh


*Er að hanna peysu á vin minn :D Er búin að gera sniðið sem er bara mjög flott sko en þarf að hringja á morgun og panta efnið heheh get ekki beðið því ég get ekki gert mikið meira í augnablikinu og mig hlakkar svo til að sjá hvernig þetta kemur út þegar ég er búin að sauma þetta allt saman en ég mun sennilega setja inn mynd eða eitthvað þegar ég er búin :D vúhúúú
Ég T.D. Hannaði og saumaði þessar leðurbuxur handa mér :D





En jæja Er að spá í að skella mér í sturtu og gera eitthvað þangað til ég fer að vinna... Þið bara takið því rólega og hugsið vel um sjálfa ykkur !!!!
Elsk jú ALL <3

LaTeRz

*Myndband Dagsins :


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 17:16:29 / blau-krilin

Fucking Pocket :D

Jæja þá er bekkjarmótið búið á Króknum og vááááhvað bæði ég g systir mín skemmtum okkur vel :D bara snilld sko...
'Eg og Vilborg mættum á svæðið á föstudagskvöldið um 10 leytið og var tekið vel á móti okkur :D
Settumst niður hjá Sigga Bigga og fengum okkur bjór.. Yayyy ég fékk loksins að hitta Pétur minn vúhúúúú... Fórum svo á barinn og var það bara fínt... "það var mjög sætur dyravörðurinn sem var þar hahahah"
Síðan var bara aftur farið til Sigga... Fórum svo að sofa "'Eg, Vilborg og Siggi"
Vöknum svo við það að Binni, Pétur og Addi standa yfir okkur og eru að tala um að klukkan er hálf 1 þannig ég og Siggi hefðum bara 30 mín til að gera okkur til fyrir hittinginn í skólanum, 10 mínútum seinna heyri ég í Sigga "KLUKKAN ER 10"
Þannig við enduðum samt á fótum með bjór í hönd :D hehehe fórum svo útí skóla og þar tók skólastjórinn á móti okkur "svona eins og í gamla daga hahahah"
tókum við öll 40 hring þar að skoða og fórum síðan uppí Litla skóg og var okkur skipt í lið og fórum í ratleik sem meira að segja innihélt bjór og fleira áfengi and DJÖ hvað þetta var gaman... "Liðið mitt hét  #1" og UNNUM VIÐ... Við erum bara einfaldlega BESTAR vúhúúú...
síðan var tekin smá pása á þetta og hittumst við svo á Mælifelli þar sem var þessi æðislegi matur og skemmtileg skemmtiatriði :D
Síðan fórum ég og systir mín aftur heim til Sigga þar sem Pétur var einn að bíða hahah Sorry Pétur minn. Svo var bara drukkið þangað til við skelltum okkur aftur á Barinn þar sem að Binni okkar var að spila.. Mættu ekkert rosalega margir þangað en þar sem maður var í góðra vina hópi skemmti ég mér konunglega "með sæta dyravörðinn þarna again hehehe"
Þegar leið á nóttina röltum við heim til Sigga og drukkum aðeins meira..
Þegar við vöknuðum læddumst ég og systir mín út svo við myndum nú ekki vekja neinn og fór ég uppí kirkjugarð að heimsækja leiðið hjá Elvari Fannari. R.I.P Elsku vinur.
ELSKA YKKUR ÖLL !!!!!!
Er búin að setja einhverjar myndir inná Mæspeisið mitt
www.myspace.com/adexj
Allir að fara að skoða hehehe...
en vil allanvena þakka alveg innilega fyrir mig og hahaha Takk Siggi Biggi fyrir gistinguna :D heheh
En já, ég og systir mín komum heim á sunnud síðasta og báðar beint í vinnu yayyy alltaf gaman af því.
Annars er ekkert mikið búið að ské í mínu lífi nema sjúkraþjálfi og sjúkraþjálfi...
Er samt búin að vera rosa dugleg að drulla mér út að labba og hlaupa.. Þó það se mjög sárt og allt það, en ég læt mig hafa það heheh tek bara fleiri verkjatöflur :s
'I dag er ég hinsvegar búin að vera dugleg og bakaði brauð með ostafyllingu mmmMmmmmmm Það var ekkert smá gott sko... Endilega kíkiði í kaffi og smakkið yummie :D

Styttist óðum í Eistnaflug.. 'Eg er alveg rosalega spennt fyrir því heheh Vonandi sé ég ykkur sem flest þar :D

*Nýr Strumpur Vikunnar. Yayyy

Ætla að hætta þessu blaðri í augnablikinu, þetta er bara komið útí eitthvað bull hjá mér myndi ég nú segja...
Endilega kommentið/kvittið fyrir komu ykkar hingað :D
Þannig ég segi nú bara...

*LaTeRz

FUCKING POCKET :D

*Myndband dagsins : Roadtrip lag mitt og Vilborgar :D




» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 23:07:17 / blau-krilin

1 Dagur :D

Jæja gott fólk.. Ætli það sé ekki bara komið að því að maður renni á Sauðárkrók á morgun :D yayyy get ekki beðið sko, ætla að taka systir mína með mér og munum við sennilega tjalda (ef ég næ að redda tjaldi fyrir morgundaginn) og held ég að það verði bara gaman myndi ég segja.
Hlakka til að hitta alla sem ég þekki þar og suma af þeim hef ég nú reyndar ekki hitt í einhver ár :s
En váááá hvað ég á eftir að gera mikið áður en ég fer og veit ekki einu sinni hvort ég nái að gera allt sem ég þarf að gera djjííí "kemur orðið hans Guðna enn einu sinni" ANSK.... hehehehh

Æhhhh váááá ég fór með systur minni á Seyðisfjörð um daginn og var ég nú ekki lengi að hringja í hann Helga minn (hann er bara svo æðislegur). . . . tók hann myndavélina sína með og tókum einhverjar myndir en váááá hvað maður (ég) er fokking félagsfælin þegar ég er ekki að drekka.. Er farin að taka meira og meira eftir því...
En allavena þá held ég að myndirnar hafi komið nokkuð vel út.. Treysti nú alveg Helga fyrir því, hann er náttla bara snillingur :D
Spjölluðum aðeins saman þangað til systir mín kom að sækja mig og svo brunuðum við heim því ég þurfti að fara að vinna aðeins...
Sakna þín Helgi og þú veist að þú ert alltaf velkominn... whenever :D

Annars er nú ekkert mikið búið að ské þessa vikunna... nema ég og Idz fengum báðar frekjuköst semer nú varla sögu færandi...
Munaði engu að Edz hafi verið send á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað vegna vægs sjokks sem hún fékk þegar hún kom heim einn morguninn og við vorum búnar að kríta ALLA veggina.. Þá meina ég gjörsamlega ALLA!!
hahahahahahahahhahahahahahahahaha það var bara snilld :D

*Búi félagi loksins losnaður út greyið hehehhe vona bara að hann og hans fjölskylda hafi það gott !

*Nýr Strumpur Vikunnar, alltaf gaman af því :D

Þetta er nú samt eiginlega svona bráðabyrgðablogg þar sem ég er einhvernvegin alveg tóm í augnablikin.. hmmm veit ekki afhverju....

P.s. Kittý.... plíssss koddu á Eistnaflug.. Veit að allavena Elvar snúllz er búinn að fá frí og ætlar pottþétt að koma yayyyyy

Hafið þið þaðbara sem allraBEST yfir helgina og eiginlega bara alltaf !! :D

Laterz

*myndband dagsins er að þessu sinni Criss Angel
(Því hann er svo HOT HOT HOTTTTT)       *sLeF

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 17:22:42 / blau-krilin

Smá Myndablogg Og Tilhlökkun Dauðans...

...Það styttist óðum í bekkjarmótið á Sauðárkrók.. Ohhhh mig hlakkar svo til.
Systir mín ætlar að taka Roadtrip með mér og sennilega Helgi minn ef hann er ekki að vinna :D Munum við bara tjalda eða eitthvað... Þetta á eftir að vera SVO gaman.

En váááá hvað ég og Idz vorum duglegar síðustu helgi.. Við fórum EKKI á barinn, heldur sátum við hérna heima AÐ SPJALLA váááá...
Helgi minn og Haffi Haff voru hérna í heimsókn *HeArTs !!
Það var bara æðislegt að hafa þá hérna.
Fengum við svo Alla "Fyrrum Pólski, Pólski" hehehe og Dísu litlu Siss í heimsókn og var nú bara mjög gaman hjá okkur, bjuggum til heimilisdans og dönsuðum hann útí gegn sko.
Dísa gisti og vöknuðum við einhverntíman á sunnud og voru þá Haffi og Helgi already awake heheh... Vakti ég Idz og við fórum í krónuna að kaupa inn :D
Bjuggum svo til pizzu "ég náttla meistarapizzubakari" HAHAHA nei, svona í alvöru.. þá er ég það :D
Dísa fór að vinna kl.16... 'Eg, Idz, Helgi, Haffi og Villa "hin systir mín" kíktum á Kaffihúsið hérna hinu megin við götuna... Helgi litaði á mér hárið :D
TAKK FYRIR ÞAÐ ÁST!
Svo bara jáááá, keyrðum við Haffa í flug og Helga á Seyðisfjörð og var það nú bara mjög skemmtilegt roadtrip :D fyrir utan það að ég vildi taka Helga aftur hingað á Esk.. I miss him <3 Elskjú Helgz
Jæja þá er ég búin að lýsa helginni 6-8 Júní fyrir ykkur ehheheh.
HelgiHaffi073.jpg image by Strumparnir  ; ">HelgiHaffi074.jpg image by Strumparnir
*Síðan bara fariði í Myndasöfn og Myndablogg 3 og skoðið myndirnar stærri þar.

*Fór til sjúkraþjálfa á Þriðjud og svo eftir það til læknis og fékk LOKSINS verkjalyf. Eitthvað annað en draslið sem ég fékk síðast.

*Búi félagi minn losnar af Skólavörðustígnum á Laugardaginn næsta og er ég himinlifandi fyrir hönd Kollu konunnar hans :D Hann er búinn að vera þar síðustu 3 mánuði læstur inni awwwww

*Styttist í Eistnaflug sem haldið verður á Neskaupsstað 10-13 Júlí.. www.eistnaflug.is
djjííí hvað verður mikið stuð og er ég að vonast eftir að sjá sem flesta þar.

*Ojjjjjjjj 'Eg, Edz og Idz fórum á svo feitt og sveitt matarSUKK í gær... Pöntuðum endalaust af feitum og ógeðslegum mat og átum og átum.. Fundum alveg hvernig við FITNUÐUM við hvern bita sem við tókum... Djjííí þetta verður sko EKKI gert aftur í bráð:!:!:!:

*Veit ekki alveg hvað er í gangi en það er eitthvað búið að vera að helvítis vatninu á þessu blessaða heimili.. Akkurat núna er EKKERT heitt vatn og er ég enganvegin sátt þar sem ég nauðsynlega þarf að komast í sturtu og það STRAX!
I feel fucking dirty hahah... En ætli ég endi ekki bara með því að mana mig í að fara í ískalda sturtu Ohhhhh DJÖ.. Frískleikinn alveg að fara með mann hérna.
Þegar ég er búin í köldu sturtunni er ég að spá í að skella mér út að hjóla.

*Nýr Strumpur Vikunnar... Yayyyy

*Endilega ef þið eruð með Myspace eða MSN addiði mér þá.
Myspace : www.myspace.com/adexj
MSN : adexjordison@hotmail.com

Jæja þá held ég að ég sé að verða búin að mana mig í köldu sturtuna þannig óskið mér GOOD LUCK hahah og ég segi bara...
LaTeRz LoVeRz

*Myndband Dagsins á vel við því við erum öll svo falleg :D Takk Vignir fyrir að senda mér þetta lag!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 17:24:45 / blau-krilin

Djjjííí

Vil byrja á að þakka Guðna "Mr.Handsome" fyrir að koma þessu orði vel fyrir inní hausnum á mér... Djjíí hahahahahh

Hérna.. Þá er fermingabarnamótið hér á Esk búið og held ég nú bara að allir hafi skemmt sér konunglega.
Byrjuðum á að hittast í Austurríki á Föstudagskvöldinu og vorum þar merkt í bak og fyrir.. Opnuðum bjór og spjölluðum saman. Síðan röltum við niðrí skóla og þar tók Frissi kennari á móti okkur og sýndi okkur miklar breytingar á skólanum og fengum við svo að horfa á VIDEO frá því við vorum í fyrsta bekk... Var Friðjón þar fremstur í flokki "Held að það hafi ekki verið búið að finna uppá Rítalíni þá" hahhaha.
Síðan röltum við aftur niðrí Austurríki og fengum við þar að horfa á SNILLDARVIDEO sem Eiríkur "Sem fæddist með upptökuvél í höndunum" setti saman og vóóó það var alveg 50 mínútur á lengd. Þetta toppaði kvöldið sko, vissi ekki einu sinni að sumt af þessum mómentum væri til hahah.. 'Eg vil bara þakka Eika innilega fyrir að hafa tekið sig til og gert þetta.. TAKK TAKK TAKK!!
Síðan á laugardeginum vaknaði ég með þetta þvílíka kvef og helvítis hálsbólgu og var bara hreinlega ekki að meika neitt sko, en jújú ég lét mig hafa það og drullaðist á lappir, fór í sturtu og var svo dregin útúr húsi, með bjór í hönd "klukkan 14".
Fór þaðan inná Mjóeyri þar sem róðrakeppnin og koddaslagurinn og allt það var haldið.. Og viti menn, haldiði ekki bara að ég hafi tekið þátt í róðrinum og tókum við þar árgang ´64 í bakaríið ;) if you know what i mean hehehe munáði nú samt bara 10 sekúndubrotum en samt hehehe held samt að við vorum með næst besta tímann af landskröbbunum, síðan voru náttla 2 bátar sem kepptu líka og náðu þeir betri tíma en við. TAKA ÞAÐ FRAM AÐ 'EG HEF ALDREI GERT ÞETTA 'AÐUR :D og við æfðum ekkert fyrir þetta.
Síðan tóku nokkrir strákar þátt í koddaslagnum og jááá það var nú bara fyndið, Gaman að sjá það heheh... Valli... Þetta var BARA snilld ;) vúhúúú
Djjííí síðan röltum ég og Idz áleiðis heim þar til Jóga sæta tók okkur uppí og skiptum við um föt þar sem var smá rigning úti og við orðnar hálfblautar innað beini (hefði samt mátt segja að ég hafi verið í blautbolakeppni, í hvítum bol og bikiní innanundir sem sást langar leiðir í gegn), fórum á kaffihúsið og fengum okkur bjór.
Kemur Alli "pólski, pólski" (þar sem hann er nú eiginlega rauðhærður og var búinn að safna yfirvaraskeggi fyrir helgina "Reyndar búinn að safna frá fermingu ef segja má rétt frá ;)" og LITA það SVART, þá má ég kalla hann þetta) askvaðandi, frekar drukkinn og kaupir þessa frábæru kampavínsflösku sem við nú stútuðum á nokkrum mínútum og nokkra bjóra hahah.
Fer heim og mála mig og geri mig nú sæta fyrir kvöldið :D
Edz keyrði mig og Alla "Pólski, pólski" niðrí Austurríki... Drukkum enn meira og fórum svo aftur á Kaffihúsið í smá kaffi :D Enduðum síðan á balli með 'I Svörtum Fötum, sem var nú bara fínt "Minnir mig" bwahah.
Sunnudagurinn fór nú bara í að vera smá slök heima við en fór svo að sjá Haffa Haff á Nesk um kvöldið og var það nú bara MJÖG gaman :D
Takk fyrir æðislega helgi krakkar :D
Set eitthvað af myndunum sem ég tók í Myndasöfn :D
En jáá þá er það allt komið á hreint hvernig Fermingabarnamótið var svo nú get ég haldið áfram með eitthvað annað sem er í gangi... sem er nú ekki mikið blah

Er loksins byrjuð að vinna aðeins, samt frekar erfitt þar sem ég verð uppgefin í mjöðminni mjög fljótt en ég ætla samt að láta reyna á þetta. Er gjörsamlega búin að fá ógeð af læknum og því kjaftæði hah.
Sjúkraþjálfinn loksins búinn að hringja og er ég þegar búin að fara einu sinni þangað :D yayyy og jáá fer aftur á Þriðjudaginn næsta.. Vona innilega að þetta gangi upp svo ég þurfi ekki að fara í aðgerð:s

*Þarf samt að fá einhvern til að vinsamlegast taka af mér visakortið mitt, er alltaf að MISSA MIG á E-bay... Djjíííí

*Nýr Strumpur Vikunnar :D vúhúúú ég ELSKA Strumpa. Heiti ekki OZ the OZome Smurf fyrir ekkert hahahah

En váááá hvað ég datt alltí einu út og veit ekkert hvað ég á að skrifa :s Er farin að hugsa svo mikið að ég held að ég sé farin að bræða í mér heilann, sumir hugsa kannski með sér : Hvaða heila... en það er eitthvað smáræði þarna inní hausnum á mér.. eða allavena svona annað slagið heheh....

Vona bara að allir eigi góða helgi, takk fyrir pent.

*LoVeS

*Myndband dagsins "Smá öskur í gangi en bara gaman af því" 'Eg bara elska þetta lag :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 21:25:16 / blau-krilin

Síðasta helgi var æði . . .

Það er hægt að segja það að síðasta helgi hafi komið alveg ótrúlega vel út.. Mjög skemmtileg en þó smá erfið og taugatrekt.
Fékk mér tattoo... Hitti marga vini... Fór í keilu "Lét reyndar R'USTA mér í keilu"... Fór í BINNAPARTY yayyyy heheheh Það var nú heavy gaman sko, þótt ég hafi mætt svoldið seint en hmmm ég mætti þó :P Takk fyrir að bjóða mér Binni, það var æði að hitta ykkur öll aftur.
Týndi töskunni minni með ÖLLU í á föstudagskvöldið og þurfti að láta loka kortinu mínu á Laugardag en svo rétt eftir það kom taskan í leitirnar "sem betur fer" heheh
Ætla samt alls ekkert að vera að fara í gegnum allt sem ég gerði en jááá...
'A sunnudaginn fór ég svo með Skara frænda og Kareni heim til þeirra til Keflavíkur, kíkti aðeins út þar með vini mínum sem ég er nú ekki búin að hitta í næstum 2 ár eða svo, þannig jamms, það var nú mjög gaman...
Var hjá Skara og Kareni þangað til á miðvikudaginn og þááááá kom ég aftur hingað "heim" BLAH...
Vil samt þakka þeim fyrir að vera eins yndisleg og þau er og vááá hvað þau hjálpuðu mér mikið!! Love you guys !!!!!!
Hér sit ég á fimmtudagskvöldi, nýkomin heim úr vinnunni að narta í pizzu vúhúú og horfa á tv-ið.
'I dag opnuðu frænka mín og frændi nýtt kaffihús hérna hinum megin við götuna og ég kíkti nú aðeins þangað.
Þetta er MJÖG flott hjá þeim, mæli með því að allir kíki þangað og fá sér nú kaffi og eitthvað með því ;)
Og jááá kannski bara óska þeim innilega til hamingju með þetta kaffihús, mjög kósý og flott :D
'A morgun byrjar Sjómannadagshelgin og er þá Fermingabarnamót árgangs ´84 og er ég nú í þeim árgangi og hlakka alveg passlega til... Vona bara að ég verði ekkert rosalega slæm því ég væri nú alveg til í að taka þátt í einhverju af þessu sem þau eru að fara að gera en það kemur nú bara í ljós þegar að því kemur :D

Og það styttist óðum í að ég fari að láta sjá mig á króknum og djíííííí hvað mig hlakkar til heheheh, það á nú eftir að vera eitthvað allsvakalegt heheheh

P.S. Kittý þú ert BEST.. Lestu þetta og hlýddu : Komdu austur 10-13 Júlí á Eistnaflug, það verður bara rokkað feitt sko :D Love you girl !

*Nýr strumpur vikunnar :P vúhúúúú Kíkiði á hann :D

Jæja er að spá í að skella mynd í tækið og láta mér leiðast þannig ég segi nú bara...

...LaTeRz

*Myndband dagsins HAHAHAH Þetta er TOTALLY ég :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 15:57:10 / blau-krilin

Jæja...

'Eg ætla að byrja á því að yfirlýsa hér að ég er að fara suður núna á næsta fimmtudag (22 Maí) og þar sem að ég er svo busy manneskja og næ oftast ekki að hitta eitthvað af vinum mínum fyrir sunnan vil ég vinsamlegast biðja ykkur að panta tíma bara hérna í kommentunum hér fyrir neðan;):haha: hehehehehh
Það væri nú samt fínt ef þið mynduð gera það svo ég sjái hverjir vilja hitta mig, svo ég sé nú ekki að hringja og ofsækja fólk ef það vill nú ekki hitta mig heheheh
Hlakka til að sjá ykkur :P

En jebbs Það er nú ekkert allsvakalega mikið búið að ganga á á þessu heimili eða kannski fyrir utan helgina, eitthvað sem ég ætla ekkert að ræða frekar hérna :P

*Idz og Edz búnar að vera svakalega duglegar að fara út að hjóla, ég er mjög stollt af þeim heheheh og enn og aftur skulum við klappa fyrir þeim takk fyrir pent.

*Við erum búnar að losna við ALLA kettlingana vúhúúú loksins en samt sakna ég Balck Metal heavy mikið.. Hettann á hettupeysunni minni er allsvakalega tóm alltaf akkurat núna :( og einmanna myndi ég nú bara segja... Það var þvílíkt þægilegt að hafa köttinn alltaf sofandi þar hehehehh

*Það er kominn nýr Strumpur vikunnar :P Mjög gaman af því, þannig þið getið farið að tjékka á HONUM :P vúhúú

og yes hvað get ég sagt það styttist óðum í Fermingarbarnamótið hérna á Esk og mig hlakkar bara alveg passlega mikið til.. Það verður núna um Sjómannadagshelgina og enn meiri ástæða fyrir að vera full ALLA helgina heheheh þó maður hafi kannski verið farin að spá í einu stykki meðferð eftir síðustu helgi hahahah *dJóK *dJóK

*En eins og ég sagði í síðasta bloggi þá var ég að auglýsa eftir Deiti á Bekkjarmótið á króknum... Hvað er málið? Er ég ekki nógu góð fyrir ykkur eða? Dííííí Bíðiði bara þangað til ég spyr ykkur næst :P

*Var að spá í að enda þetta með smá myndabloggi með myndum sem ég tók um daginn þegar 'Eg og Idz tókum okkur til og grilluðum fyrir systir mína og kærastann hennar því hann var að fara til síns heimalands daginn eftir "en kemur samt aftur" og held nú bara að allir hafi skemmt sér konunglega, er samt að spá í að setja allar myndabloggs myndirnar í sér myndamöppu svo þær komi stærri út þar... Þannig ég segi nú bara enjoy...

photoblog004.jpg image by Strumparnir   photoblog003.jpg image by Strumparnir   photoblog005.jpg image by Strumparnir
photoblog006.jpg image by Strumparnir   photoblog002.jpg image by Strumparnir   photoblog007.jpg image by Strumparnir
photoblog009.jpg image by Strumparnir   photoblog010.jpg image by Strumparnir   photoblog012.jpg image by Strumparnir
photoblog013.jpg image by Strumparnir   photoblog029.jpg image by Strumparnir   photoblog030.jpg image by Strumparnir
photoblog031.jpg image by Strumparnir   photoblog032.jpg image by Strumparnir   photoblog033.jpg image by Strumparnir
photoblog035.jpg image by Strumparnir   photoblog036.jpg image by Strumparnir   photoblog038.jpg image by Strumparnir
photoblog039.jpg image by Strumparnir   photoblog041.jpg image by Strumparnir   photoblog042.jpg image by Strumparnir

*Held að það sé nú bara mest allt komið í bili þannig ég segi bara...

*LaTeRz

*Myndband dagsin, eitt gamallt og gott hérna :P

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 18:16:49 / blau-krilin

Well...

....Ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg :D þó það sé nú ekki mikið að segja frá eins og er... Það er ekki mikið sem ég geri í þessu ástandi sem ég er búin að vera núna í einhvern tíma en ætla að reyna að kreista eitthvað útúr mér hérna heheheh

*Byrjum allavena á að ég fór uppá spítala í gær og  hitti þar sjötta eða sjöunda læknirinn sem kíkir á mig díííííí og í rauninni það eina sem hann gerði var að láta mig hálfpartinn strippa (hef nefnilega alltaf svo gaman að því heheh) og leggjast á bekk.
Tekur sig svo til og þrýstir svo beint þar sem ég er verst "jááá ég táraðist af sársauka" og sprautar mig 2svar sinnum í mjöðmina, beint þar sem mest allur sársaukinn er:evil: Arrrggggg. Og ég náttla svo gáfuð, vissi ekkert að hann myndi sprauta mig og mæti sjálf á bíl uppá spítala og þurfti svo að keyra heim eftir þetta allt saman... Stend svo útúr bílnum þegar ég er loksins komin heim og viti menn, það leið næstum yfir mig heheh...
Veit samt ekki alveg hvort þetta eigi að jafnast út og verða eitthvað betra eftir einhverja daga en allavena núna þá er ég mun verri en ég var.. 'Atti þvílíkt erfitt að finna réttu stellinguna til að sofna í nótt:( og heh á frekar erfitt með að labba.
og yes búin að vera með kannski smá pirring útí allt og alla og vil bara biðjast afsökunar á því...

En ég vona svo innilega að ég verði EITTHVAÐ búin að lagast fyrir bæði bekkjamótin sem ég er að fara á.. 'Argangur ´84 hérna á Esk og svo 'Argangur ´84 á Sauðárkróki... ohhhh þetta á eftir að vera svooooo gaman og bara hreinlega get ekki beðið heheh hlakka svo til að hitta alla þessa gemlinga aftur:haha: vúhúúú:!:
en jáááá mig vantar maka (date)... Einhver sjálboðaliði:þ heheh You know, date, heh, með mér heheh það eru ekki alltaf sem einhverjum býðst að fara á date með mér *blink *blink


*Svo þetta hérna.... Þetta er bara sætast í heimi.
Þetta er hún Black Metal, 1 af litlu börnunum á heimilinu...
Hún kemur alltaf til mín og stekkur uppá öxl og kemur sér svo innilega vel fyrir í hettunni minni:lol:  Þetta er bara sætt sko hehhehe
GetAttachment.jpg image by Strumparnir    GetAttachment-1.jpg image by Strumparnir


*Svo væri líka fínt að allir myndu nú kommenta hérna eða skrifa í gestó, veit um fullt af fólki sem er að skoða síðuna en skilur svo enga slóð eftir sig heheh..
væri alveg til í að sjá hverjir það eru:d


*Langar líka bara að koma því hér á framfæri hvað ég dýrka meðleigjendur mína "Idz og Edz" Þær eru æðislega báðar tvær og bara fyrir að þurfa að hlusta á mig væla og kvarta og grenja.. OFT á dag, þannig... Gefum þeim nú gott klapp ;) tíhí
*LoVeS *LoVeS

En annars jáááá Elska reyndar alla vini mína... Veit ekki hvað ég myndi gera án ykkar !!!!!!

Laterz LoVeRz

*Myndband dagsins er reyndar live myndband en samt flott lag "Takk Haffi fyrir að minna mig á þetta lag"

*Kannski svona eitt vidoe af mér koma labbandi inní eldhúsið hahahah, er samt mjög fersk í þessu myndbandi svona miðað við aðstæður og verki... Get reyndar EKKERT hreyft mjöðmina 8|En yes, eins og ég sagði...LaTeRz LoVeRz

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 00:13:08 / blau-krilin

*ReTaRd

Jæja þetta var mjög áhugaverður dagur í okkar lífi...

í dag.. (Miðvikud 7 Maí)

*Fór (Oz) í vinnuna.

Fór svo heim en um leið og ég (Oz) var komin heim þá hringir Edz og biður mig að sækja sig í vinnuna, sem er á sama stað og ég var nýkomin frá, þannig ég snéri við og sótti hana :D

*Sóttum svo Idz í hádegismat og skemmtum okkur svo frábærlega og fórum í sumardressið.
      

   

*Keyrði Idz again í vinnu, þarf sem hún púlar og púlar fyrir mat á borðið og þaki yfir höfuðið fyrir okkur stórfamilien.


*Edz skipti um dekk á BABU (bíllinn hennar) svo hægt væri að fara með hann á til (læknisins) að fá 4 splunkuný sumardekk. Frissi og Anton komu til að skutlast með henni og keyra henni til baka.
   

*'Eg stalst í apollo lakkrísreimarnar hennar Idz.


*'Eg boxaði í 16 stiga hita takk fyrir pent:haha:
      

*Edz tók smá til í bílskúrnum og kom svo síðar meir að hjálpa gömlu "mér" að gera fínt "sópa" fyrir utan húsið.


*'Eg sópaði alla stéttina bæði fyrir framan húsið og aftan.


*Þetta er útkoman eftir að við tókum til. (Sjáiði samt latexið sem er í gangi hérna)
   

*Smá sígópása.


*'Eg skrapp uppí Egilsstaði að sækja fallegur systir mína (Dísu) og hitti þar Helga sæta minn *HeArTs <3
      

*Sótti Idz í vinnuna og fór sjálf að vinna aftur.
   

*Þegar ég kem heim eru þær næstum búnar að tæta upp matinn af hungri.


*Við grilluðum og fórum í rómantíska lautarferð útí garð. (Erum ekki alveg búnar að fjárfesta í REAL grilli heheh)
      

      

*Þar sem að Edz gat ekki haldið ró sinni eitt augnablik og hætt að leika sér með matinn sinn þá þurftum við að setja hana í búrið sitt:!:


En jááá þar sem þið sjáið hér að ofan að við erum smá svona "ReTaRdS"
ætla ég að láta þetta myndband fylgja með og kannski bara láta það vera myndband dagsins þar sem það segir sig alveg sjálft að það á alveg perfectly við :D


En allavena þá bara bíð ég góða nótt eða álíka :P
Hafiði það sem allra best untill next :D

*HeArTs



» 3 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 01:09:04 / blau-krilin

Laugardagurinn 3 Maí

(laugardagsmorgun, 11am)
Er nýkomin heim úr vinnu, Idz nýfarin í vinnu, og eins og svo oft áður fyrr var ég totally ósofin, var búin að lofa mér út um kvöldið þannig ég ákveð að leggjast aðeins uppí rúm og reyna að dotta... Vakna svo við þennan þvílíka jarðskjálfta hérna frammi (Idz að taka til með iPodinn á billjón, skellandi skúffum og skápum) ég var sko ekki sátt með það og klukkan ekki nema 14.30 og ég varla búin að fá að sofa... En getur maður skammað þetta litla krútt... neeeee held ekki :P
*LoVe *LoVe

.....sami dagur, (laugardagskvöld kl.22)
Kom heim úr vinnu (hah annað skiptið sama dag).. Fallega systir mín "Dísa" kom með mér.... Idz hálf nakin með bjór í hönd...
'Eg fór bara inní herbergi í tölvuna, hálfri fýlu því ég var drullu þreytt, en var ekkertí fýlu það lengi, kem fram og fæ mér bjór, byrjum að gera okkur til fyrir kveldið.... Svo nokkrum mínútum seinna var bankað á dyr, það mun hafa verið sæti frændi minn hann Frissi og sæti meðleigjandinn hún Edz... hún í brjáluðu skapi og eiginlega bara fer að sofa því hún nennti ekki með okkur út, stuttu seinna kemur svo annar frændi minn hann Hemmi.
Og jáááá sææælllllllll talandi um að systir mín fer að reyna að ná sambandi við fólkið hérna í húsinu en enginn að hlusta, svo öskrar hún eiginlega yfir hópinn og spyr hvaða HELV.. brunalykt þetta væri.. 'Eg bað hana vinsamlegast um að tjékka ruslið því nýbúið var að tæma öskubakkann... Þá er nú bara þessi þvílíki reykur útum ruslaskápinn og við stökkvum öll til og opnum hann, þá var eiginlega bara kveiknað í ruslinu sem við gripum og hentum út fyrir dyr... Hjúkk að hún minntist á þetta því enginn okkar tók eftir þessu... hefði getað farið frekar illa !!!
Förum svo bara á ball sem enginn af okkur man eiginlega eftir, vorum öll komin í staupin og eitthvað kjaftæði sko hah
Kvöldið endaði þó ekki nógu vel fyrir alla, en svona er þetta bara.
Mér var keyrt heim með nokkrum öðrum en Idz ákvað að taka leigubíl 1 heim, veit ekki alveg afhverju hún tók þessa ákvörðun en við hittumst svo heima...
Idz vildi fara að sofa en ennþá nokkrir hér sem ákváðu að hringja og bjóða fleirum í party.. Edz reis úr rekkju við þessi ummæli : Það er partý hjá Oz, komiði.
Edz var sko ekki á þeim buxunum, ríkur hér fram og öskrar yfir alla að það væri sko ekkert HELV... partý hjá Oz:!:  (mynd fylgir hér fyrir neðan á eftir)
Þá var bæði ég og Idz komnar í rekkju en fólk gekk hér um lausum hala :P
(Ekkert persónulegt gagnvart ykkur sem voruð hérna) hehehehh


GetAttachment.jpg picture by Strumparnir  Hér sjáiði Edz, alveg snarmeinuð með þetta kökukefli takk fyrir pent...


En allavega... Nighty Night

Laterz
Oz + Idz + Edz


Myndband dagsins :



» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 21:37:53 / blau-krilin

Jáhhh Góða Kvöldið :D

jæja gott fólk þá er loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir...  Við herbergisfélagarnir ætlum loksins að leyfa fólki að njóta þess hversu viðburðaríku lífi við lifum:lol:

Erum svona læra inná þetta allt saman...munum fara að henda inn myndum af okkur gyðjunum *hóst* og e-ð fleira skemmtilegt mun koma hér inn:)
Endilega verið þið bara þolinmóð elskurnar...
Good things come to those who wait


Laterz Skaterz




» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 10131
The Time
Könnun
Hvað Á Að Gera Um Verlsó ?




Mæspeisið Okkar